

Stjórnstöð
Stjórnstöð sem tengir X-Sense skynjara saman í eitt kerfi. Nauðsynleg fyrir app-tengingu og miðlæga stjórnun. Innbyggð sírena.
Fullkomnaðu kerfið

Stjórnstöð
Þráðlaust samtengt öryggi
Tengdu snjallreykskynjarana þína einfaldlega við stjórnstöðina til að mynda heildstætt brunavarnarkerfi. Ef einn skynjari greinir reyk, virkjast allir skynjarar samtímis og tilkynningar eru sendar samstundis í snjallsímaforritið þitt.
Rauntíma viðvaranir í síma
Þú þarft ekki að hafa áhyggjur þó þú sért ekki heima. Um leið og reykur greinist sendir kerfið tafarlausa tilkynningu í símann þinn – svo þú fáir strax að vita af hættu og öryggi heimilisins eykst til muna.
Þægileg stjórn í appi
Með X-Sense Home Security appinu sérðu strax í hvaða herbergi viðvörunin er virk. Þú getur einnig prófað skynjarana reglulega og fylgst með stöðu þeirra – til dæmis hvort rafhlaðan sé að tæmast eða ef bilun kemur upp. Þetta veitir þér fulla yfirsýn og aukið öryggi, hvar sem þú ert.
Slökktu á sírenuni með einum smelli
Með einum hnappi í appinu geturðu slökkt á sírenuni án þess að þurfa að klifra upp á stiga til að ná í „test/silence“ takkann á skynjaranum. Fljótlegt, þægilegt og miklu öruggara.