Þjónustu- og viðskiptaskilmálar Smarton ehf.
1. Inngangur og gildissvið
Skilmálar þessir gilda um alla þjónustu og viðskipti Smarton ehf. (hér eftir „Smarton“), þar með talið en ekki takmarkað við útköll, uppsetningar, viðgerðir, viðhald, bilanagreiningu, ráðgjöf, sölu og/eða leigu á búnaði, ásamt öllum tilboðum, samningum og öðrum viðskiptum sem tengjast vörum og þjónustu Smarton.
Með því að panta vöru eða þjónustu, samþykkja tilboð, eða eiga í viðskiptum við Smarton, staðfestir viðskiptavinur að hann hafi kynnt sér skilmála þessa og samþykkt þá. Skilmálar þessir teljast hluti af öllum samningum við Smarton nema annað sé sérstaklega og skriflega samið.
Í skilmálum þessum merkir „viðskiptavinur“ einstakling, fyrirtæki, stofnun eða annar aðili sem kaupir vöru eða þjónustu af Smarton. Smarton áskilur sér rétt til að krefjast skriflegs samnings um tiltekin verkefni ef tilefni er til; slíkur samningur byggir þá á skilmálum þessum nema sérstaklega sé vikið frá þeim.
2. Þjónusta Smarton
Smarton veitir þjónustu á sviði snjallheimila, netkerfa, öryggis- og aðgangsstýringarlausna, uppsetninga, viðhalds, bilanagreiningar og viðgerða, samkvæmt nánara samkomulagi við viðskiptavin. Smarton leggur áherslu á örugga, faglega og áreiðanlega framkvæmd.
Þjónusta er veitt af starfsfólki Smarton eða undirverktökum sem Smarton kann að fela framkvæmd verkefna. Smarton ber ábyrgð á því að undirverktakar uppfylli sambærilegar fag- og öryggiskröfur og gerðar eru til starfsmanna Smarton, enda verði verkefni unnið fyrir Smarton.
Upplýsingar frá viðskiptavini: Viðskiptavinur ber ábyrgð á að veita réttar og fullnægjandi upplýsingar um verkefnið, aðstæður og búnað. Umfang, tímasetning og framkvæmd byggir á þeim upplýsingum sem Smarton fær. Smarton ábyrgist ekki að unnt sé að leysa úr öllum málum tafarlaust eða innan ákveðins tíma, en mun gera það sem raunhæft er miðað við aðstæður.
Áætlaðir tímar: Upplýsingar um viðbragðstíma, komutíma eða verklok eru almennt áætlanir og geta tekið breytingum vegna aðstæðna (t.d. umfang bilunar, aðgengi, veður, forgangsmál, bið eftir varahlutum, álag o.fl.). Smarton ber ekki ábyrgð á töfum sem stafa af óviðráðanlegum aðstæðum (sjá kafla 7).
Aðgengi og öryggi á verkstað: Viðskiptavinur skal tryggja Smarton aðgengi að verkstað, að nauðsynleg leyfi/samþykki séu fyrir hendi (t.d. frá eiganda/húsfélagi), og að aðstæður uppfylli eðlilegar öryggiskröfur. Smarton áskilur sér rétt til að fresta, stöðva eða synja vinnu ef aðstæður eru ófullnægjandi eða hættulegar. Kostnaður vegna biðar, aukafara eða endurkomu vegna slíkra aðstæðna kann að falla á viðskiptavin.
3. Tilboð og samningsgerð
Öll tilboð Smarton skulu almennt vera skrifleg (t.d. í tölvupósti) og lýsa því sem innifalið er í tilboðsverði (vinna, efni, búnaður, þjónusta, forsendur). Tilboð telst bindandi fyrir Smarton einungis á gildistíma þess og að því marki sem forsendur haldast óbreyttar.
Gildistími tilboða: Nema annað sé tekið fram gildir tilboð í 30 daga frá útgáfudegi. Smarton getur afturkallað eða breytt tilboði áður en viðskiptavinur hefur samþykkt það.
Samningur: Samningur telst kominn á þegar viðskiptavinur samþykkir tilboð Smarton skriflega, undirritar samning, eða greiðir inn á tilboðið, og samþykki hefur borist Smarton.
Breyttar forsendur / viðbótarvinna: Komi í ljós eftir samþykkt tilboðs að umfang er meira eða öðruvísi en gert var ráð fyrir, eða að forsendur breytast (m.a. vegna ófullnægjandi upplýsinga, breyttra óska eða aðstæðna á staðnum), er Smarton heimilt að rukka viðbótargjald fyrir aukakostnað. Smarton skal upplýsa viðskiptavin um slíkt eins fljótt og unnt er og, eftir atvikum, leggja fram uppfært tilboð eða kostnaðarmat.
Almennir fyrirvarar tilboða (nema annað sé tekið fram):
Tilboð miðast við þær upplýsingar sem liggja fyrir við tilboðsgerð. Ferðatími/akstur/dvalarkostnaður er ekki innifalinn nema sérstaklega sé tekið fram. Tilboð miðast við dagvinnu virkra daga nema annað sé tekið fram. Einungis það sem kemur fram í tilboði er innifalið og viðbætur/breytingar eru unnar gegn sérstöku samþykki og viðbótargjaldi. Smarton getur notað jafngildar vörur/aðferðir ef nauðsyn krefur, enda rýri það ekki niðurstöðu verks; hafi slíkt áhrif á kostnað eða tímasetningar skal upplýsa viðskiptavin.
Áætlaður vinnuliður og rauntímarukkun
Sé vinnuliður tilgreindur sem áætlaður í tilboði, er sú áætlun byggð á þeim upplýsingum og forsendum sem liggja fyrir við tilboðsgerð. Raunverulegur vinnutími getur reynst meiri eða minni en áætlað var, m.a. vegna aðstæðna á verkstað, ófyrirséðra tæknilegra atriða, breytinga á óskum viðskiptavinar, skorts á búnaði eða rangra/ófullnægjandi upplýsinga.
Smarton er heimilt að rukka samkvæmt raunverulegum vinnutíma umfram áætlun, enda telst slíkt eðlilegt frávik í verkþjónustu. Smarton skal eftir fremsta megni upplýsa viðskiptavin um veruleg frávik frá áætlun þegar þau verða ljós.
Allt sem fellur utan þess umfangs sem tilgreint er í samþykktu tilboði telst viðbótarverk. Þetta getur m.a. falið í sér:
– Ferðir til að sækja eða kaupa búnað, varahluti eða efni sem ekki voru til staðar.
– Biðtíma eða endurkomu vegna skorts á búnaði, aðgengi eða samþykki.
– Viðbætur eða breytingar sem nauðsynlegar eru til að hægt sé að ljúka verki á öruggan og faglegan hátt.
– Óskir viðskiptavinar um breytingar eða viðbætur eftir samþykkt tilboðs.
Slíkt viðbótarverk, þar með talinn tími, akstur og aðföng, er gjaldfært samkvæmt gildandi gjaldskrá Smarton. Teljist viðbótarverk nauðsynlegt til að unnt sé að ljúka verki með eðlilegum og öruggum hætti, telst framkvæmd þess samþykkt af viðskiptavini með því að verkið haldi áfram, nema viðskiptavinur óski sérstaklega eftir stöðvun verks.
4. Verð, gjöld og greiðsluskilmálar
Öll verð eru í ISK. Í tilboðum Smarton og í vefverslun eru verð almennt birt með virðisaukaskatti, nema annað sé sérstaklega tekið fram. Í öðrum tilvikum eru verð án virðisaukaskatts og leggst virðisaukaskattur og önnur lögbundin gjöld við samkvæmt gildandi lögum.
Greiðslur einstaklinga: Nema annað sé samið er greitt við afhendingu vöru eða lok verks. Smarton getur krafist fyrirframgreiðslu/tryggingar, sérstaklega vegna sérpantanða eða verulegs kostnaðar.
Greiðslur fyrirtækja/stofnana: Reikningar eru almennt sendir eftir afhendingu/framkvæmd. Gjalddagi er við móttöku nema annað sé tekið fram. Eindagi er almennt 14 dagar frá útgáfu nema samið sé um annað.
Vanskil og innheimta: Sé greiðsla ekki innt af hendi á eindaga reiknast dráttarvextir samkvæmt lögum nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu. Innheimtukostnaður leggst við skuld. Athugasemdir við reikning skulu berast innan 7 daga frá útgáfu; þó skal óumdeildur hluti greiddur á gjalddaga.
Stöðvun / riftun: Við vanskil eða verulega vanefnd er Smarton heimilt að stöðva þjónustu/afhendingu, fresta verki eða rifta samningi eftir atvikum, án þess að það skerði rétt Smarton til greiðslu fyrir unnið verk og tilfallandi kostnað.
Eignarréttarfyrirvari: Smarton áskilur sér eignarrétt að seldum vörum þar til kaupverð, VSK og tilfallandi kostnaður hefur verið greiddur að fullu.
5. Afbókun þjónustu, afpöntun og skil
Afbókun/frestun þjónustu: Afbókun skal berast með góðum fyrirvara. Sé verki/útkalli aflýst innan 24 klst. frá umsömdum tíma, eða starfsmaður mætir en getur ekki sinnt verki vegna aðstæðna sem rekja má til viðskiptavinar (t.d. skortur á aðgengi), er Smarton heimilt að innheimta afbókunargjald sem miðast almennt við lágmarksútkall og tilfallandi akstur skv. gjaldskrá, eða raunkostnað ef hann er hærri.
Afpöntun vara: Afpöntun skal tilkynnt án tafar. Sé vara sérpöntuð sérstaklega er Smarton heimilt að krefja viðskiptavin um sanngjarnan kostnað vegna afpöntunar (m.a. kostnað frá birgja, niðurfellingargjöld, flutning o.fl.). Almennt er ekki hægt að afpanta sérpöntun eftir að hún hefur verið send frá birgja nema gegn greiðslu alls tilfallandi kostnaðar.
Skil á vörum (skilaréttur – 30 dagar)
Hafi viðskiptavinur keypt vöru beint af Smarton og óskar að skila henni gildir eftirfarandi:
Vara skal berast Smarton innan 30 daga frá kaupdegi.
Framvísa þarf kvittun/reikningi sem sönnun fyrir kaupum.
Varan skal vera ónotuð, óskemmd og í upprunalegum umbúðum, ásamt öllum fylgihlutum, leiðbeiningum og fylgigögnum.
Innsiglaðar umbúðir (plast/öryggisinnsigli) skulu vera órofnar, nema annað leiði af ófrávíkjanlegum neytendarétti.
Ef skilyrði eru ekki uppfyllt getur Smarton hafnað skilum eða endurgreitt að hluta (t.d. vegna virðisrýrnunar eða tilfallandi kostnaðar).
Sérpantaðar vörur (vara pöntuð sérstaklega fyrir viðskiptavin) eru almennt ekki endurgreiddar nema galli sé til staðar eða lög kveði á um annað.
Endurgreiðsla fer almennt fram með sama greiðslumáta og greiðsla barst, innan sanngjarns tíma frá því að vara berst og hefur verið yfirfarin. Smarton getur boðið inneignarnótu sem valkost ef við á.
6. Ábyrgð, gallaúrræði og kvartanir
Kaup og þjónusta Smarton lúta íslenskum lögum, m.a. eftir atvikum lögum nr. 50/2000 um lausafjárkaup (kaup í atvinnuskyni), lögum nr. 48/2003 um neytendakaup og lögum nr. 42/2000 um þjónustukaup. Ekkert í skilmálum þessum takmarkar ófrávíkjanleg réttindi viðskiptavina samkvæmt lögum.
Kvarta skal um galla eins fljótt og auðið er eftir að galli uppgötvast. Smarton mun bjóða úrræði í samræmi við lög og eðli galla, svo sem viðgerð, skipti, afslátt eða riftun, eftir því sem við á. Um þjónustu gildir að Smarton skal fá sanngjarnan frest til úrbóta ef kvörtun reynist réttmæt.
7. Takmörkun ábyrgðar
Að því marki sem lög leyfa ber Smarton ekki ábyrgð á óbeinu/afleiddu tjóni, rekstrartjóni, tekjutapi, missi hagnaðar eða töpuðum tækifærum, nema tjónið megi rekja til ásetnings eða stórfellds gáleysis af hálfu Smarton.
Gagnvart aðilum sem kaupa í atvinnuskyni takmarkast ábyrgð Smarton að jafnaði við þá fjárhæð sem greidd var fyrir viðkomandi vöru eða þjónustu sem tjón tengist, nema lög mæli fyrir um annað.
Force majeure: Smarton ber ekki ábyrgð á töfum eða vanefndum sem stafa af óviðráðanlegum atvikum (t.d. óveðri, náttúruhamförum, eldgosum, jarðskjálftum, verkföllum, faröldrum, röskun á samgöngum/fjarskiptum, bilun hjá birgjum/undirverktökum, skorti á búnaði eða öðrum ófyrirséðum aðstæðum). Skyldur Smarton frestast um sanngjarnan tíma. Hvorugur aðili ber skaðabótaábyrgð vegna slíkra atvika.
8. Breytingar og endurskoðun
Smarton áskilur sér rétt til að breyta þjónustu, vöruúrvali, verði og skilmálum þessum. Uppfærð útgáfa verður birt á viðeigandi miðli (t.d. heimasíðu). Verðbreytingar gilda almennt ekki afturvirkt um samþykkt tilboð nema sérstaklega sé áskilið.
9. Neyðarþjónusta og sérverkefni
Smarton getur boðið neyðarútköll utan hefðbundins vinnutíma eftir föngum. Neyðarþjónusta er gjaldfærð skv. sérstakri gjaldskrá (útkallsgjald, yfirvinnuálag og/eða lágmarksgjald). Smarton reynir að upplýsa um áætlaðan kostnað þegar mögulegt er.
Í neyð kann Smarton að framkvæma bráðabirgðalausnir til að draga úr tjóni. Slíkar lausnir eru ekki endilega varanleg viðgerð nema sérstaklega sé samið.
10. Trúnaður, persónuvernd, lög og varnarþing
Smarton fer með upplýsingar sem trúnaðarmál og vinnur persónuupplýsingar í samræmi við gildandi persónuverndarlög og persónuverndarstefnu Smarton (ef til staðar).
Skilmálar og samningar lúta íslenskum lögum. Ágreining skal fyrst reynt að leysa með samningaviðræðum. Takist það ekki skal mál bera undir Héraðsdóm Reykjavíkur, nema lög mæli fyrir um annað. Neytendur kunna eftir atvikum að geta leitað til viðeigandi stjórnvalda/nefnda samkvæmt lögum.
11. Vefverslunarskilmálar og fjarsala (Dropp og afhending)
Þessi kafli gildir um pantanir í vefverslun Smarton og önnur viðskipti sem teljast fjarsala (t.d. kaup í gegnum vef, síma eða tölvupóst) þegar vara er send eða afhent síðar.
11.1 Pöntun og staðfesting
Pöntun telst móttekin þegar viðskiptavinur hefur lokið pöntun og greiðslu (þegar við á) og fær pöntunarstaðfestingu. Smarton áskilur sér rétt til að hafna eða fella niður pöntun ef vara er uppseld, augljós verðvilla er til staðar, grunur er um misnotkun, eða ef óviðráðanlegar aðstæður hindra afhendingu. Ef pöntun er felld niður af Smarton verður greitt endurgjald endurgreitt án ástæðulauss dráttar.
11.2 Verð, framboð og verðvillur
Verð í vefverslun Smarton eru birt í ISK og með virðisaukaskatti nema annað sé sérstaklega tekið fram. Smarton leitast við að hafa allar upplýsingar réttar, en áskilur sér rétt til leiðréttinga vegna prent- eða kerfisvillna (þar með talið verðvillna). Komi upp augljós verðvilla er Smarton heimilt að ógilda pöntun og endurgreiða greiðslu.
11.3 Afhendingarmátar (Dropp)
Smarton býður afhendingu í gegnum Dropp, samkvæmt þeim afhendingarvalkostum sem birtast í afgreiðsluferli vefverslunar hverju sinni (t.d. afhendingarstaðir/pakkabox, heimsending ef í boði). Afhending telst hafa átt sér stað þegar vara hefur verið afhent til Dropp og/eða þegar viðskiptavinur hefur fengið tilkynningu um að sending sé tilbúin til afhendingar samkvæmt reglum Dropp.
Viðskiptavinur ber ábyrgð á að veita réttar afhendingarupplýsingar (nafn, síma, netfang, afhendingarstað o.fl.). Ef rangar eða ófullnægjandi upplýsingar valda töfum, endursendingu eða aukakostnaði, kann slíkur kostnaður að falla á viðskiptavin.
11.4 Afhendingartímar og tafir
Áætlaðir afhendingartímar eru leiðbeinandi og geta tekið breytingum vegna birgðastöðu, flutninga, veðurs, álags eða force majeure. Smarton ber ekki ábyrgð á töfum sem rekja má til Dropp eða annarra óviðráðanlegra aðstæðna, en mun eftir fremsta megni aðstoða við að rekja sendingu og upplýsa viðskiptavin.
11.5 Móttaka og tjón í flutningi
Viðskiptavinur skal kanna sendingu við móttöku. Komi upp augljósar skemmdir á umbúðum eða vöru skal viðskiptavinur tilkynna Smarton án tafar og, eftir atvikum, skrá athugasemd við afhendingu/í kerfi afhendingaraðila ef það er mögulegt. Smarton kann að óska eftir myndum af skemmdum/umbúðum til að vinna úr málinu.
11.6 Skil í vefverslun og sendingarkostnaður
Skilaréttur í vefverslun er 30 dagar samkvæmt kafla 5 og gildir að því marki sem hann gengur ekki gegn ófrávíkjanlegum neytendarétti.
Viðskiptavinur skal hafa samband við Smarton áður en vara er send til baka og tilgreina pöntunarnúmer.
Vara skal send til baka vel varin, ásamt öllum fylgihlutum.
Viðskiptavinur ber almennt sendingarkostnað vegna skila, nema um galla eða mistök af hálfu Smarton sé að ræða, eða annað sé sérstaklega tekið fram.
11.7 Endurgreiðslur
Þegar skilavara hefur borist Smarton og verið yfirfarin, fer endurgreiðsla fram innan sanngjarns tíma. Endurgreiðsla fer almennt fram með sama greiðslumáta og notaður var við kaupin, nema annað sé sérstaklega samið.
11.8 Undantekningar og takmarkanir
Skilaréttur og/eða réttur til að falla frá kaupum í fjarsölu kann að vera takmarkaður eða falla niður í tilvikum sem lög heimila, m.a. (eftir því sem við á):
Sérpantaðar eða sérsniðnar vörur.
Vara sem ekki er hægt að endurselja sem ný vegna eðlis hennar eða hreinlætis-/öryggissjónarmiða ef innsigli hefur verið rofið, eftir því sem lög heimila.
Stafrænar vörur/leyfi/kóðar ef afhending hefur farið fram og aðgangur/virkjun hefur átt sér stað, eftir því sem við á.
11.9 Kvartanir og gallaúrræði (vefverslun)
Gallaúrræði og kvartanir fara eftir kafla 6 og gildandi lögum. Viðskiptavinur skal tilkynna um galla eins fljótt og auðið er og veita Smarton tækifæri til að meta og bæta úr.
12. Gildistaka og heildarsamkomulag
Skilmálar þessir taka gildi frá og með birtingu og gilda um viðskipti eftir þann tíma. Skilmálar þessir ásamt samþykktu tilboði, reikningi eða öðrum skriflegum samningi mynda heildarsamkomulag aðila um viðkomandi viðskipti.
Gildir frá 1. janúar 2026
© Smarton ehf. – Þjónustu- og viðskiptaskilmálar.