Um Smarton

Heildarlausnir í tækni og öryggi fyrir heimili og fyrirtæki

Smarton er íslenskt fjölskyldufyrirtæki sem sérhæfir sig í snjall-, öryggis-, aðgangs- og netlausnum fyrir heimili, fyrirtæki og stofnanir.

Við byggjum á yfir 20 ára reynslu af tæknilausnum, netkerfum og uppsetningum og leggjum áherslu á fagleg vinnubrögð og persónulega þjónustu.

20+ ára reynsla Tækni, öryggislausnir og uppsetningar
Heildarlausnir Ráðgjöf, búnaður og framkvæmd
Persónuleg þjónusta Beint samband og góð eftirfylgni
Smarton - heildarlausnir í snjalltækni, öryggi, aðgangsstýringum og netkerfum
Sagan okkar

Byggt á reynslu — með nýja nálgun

Smarton var stofnað árið 2025 sem íslenskt fjölskyldufyrirtæki, en teymið að baki Smarton býr yfir meira en 20 ára reynslu af tækni, netkerfum, uppsetningum og þjónustu.

Hugmyndin var einföld: að bjóða á einum stað þar sem hægt er að fá faglega ráðgjöf, vandaðan búnað og uppsetningu án þess að þurfa að leita til margra ólíkra aðila.

Við viljum gera tæknina einfaldari fyrir viðskiptavininn og skila lausnum sem virka vel í dag og er hægt að byggja áfram á þegar þarfir breytast.

Það sem við gerum

Tæknilausnir sem vinna saman

Við ráðleggjum, útvegum og setjum upp lausnir fyrir öryggi, aðgang, snjallstýringar og netkerfi. Markmiðið er að kerfin vinni saman og séu einföld í notkun og rekstri.

Snjalllausnir

Snjallheimili, stýringar og sjálfvirkni.

Öryggi og brunavarnir

Öryggis-, bruna- og myndavélakerfi.

Aðgangskerfi

Aðgangsstýringar, bómuhlið og dyrasímakerfi.

Netlausnir

Netkerfi, Wi-Fi og tengingar fyrir stöðugan rekstur.

Viðskiptavinir okkar

Sama fagmennska óháð stærð verkefnis

Við vinnum með einstaklingum og fjölbreyttum fyrirtækjum og rekstraraðilum. Verkefnin eru ólík, en nálgunin sú sama — skýr ráðgjöf, vönduð framkvæmd og þjónusta sem hægt er að treysta.

Heimili Fyrirtæki Stofnanir Húsfélög Stéttarfélög Orlofsfélög
Það sem við stöndum fyrir

Fagmennska sem sést í framkvæmdinni

01

Ráðgjöf fyrst

Við byrjum á að skilja þörfina og veljum síðan þá lausn sem hentar verkefninu best.

02

Vönduð framkvæmd

Við leggjum áherslu á réttan búnað, faglega uppsetningu og snyrtilegan frágang.

03

Þjónusta til lengri tíma

Við erum áfram til staðar fyrir þjónustu, breytingar og stækkun kerfisins eftir afhendingu.

Hafa samband

Við hjálpum þér að finna réttu lausnina

Fáðu ráðgjöf frá sérfræðingum okkar og finndu lausn sem hentar þínum aðstæðum. Sendu okkur fyrirspurn eða hringdu í okkur og við komum með skýra ráðgjöf, hentugan búnað og tilboð sem er sniðið að þínum þörfum.

Snjallari lausnir fyrir fyrirtæki & heimili.