Fyrirtækjalausnir – Smarton.is

Myndavélakerfi

Smarton setur upp hágæða myndavélakerfi frá UniFi og Ajax sem veita rauntímayfirsýn, upptökur og snjallar viðvaranir. Kerfin henta bæði inni og úti og eru hönnuð til að tryggja hámarksöryggi á athafnasvæðum, vinnusvæðum, skrifstofum, vöruhúsum og sameignum.

Skoða nánar

Aðgangsstýringar

Smarton býður upp á öflugar aðgangsstýringar frá UniFi fyrir fyrirtæki, skrifstofur og sameignir þar sem þörf er á öruggri og miðlægri stjórnun aðgangs. Lausnirnar gera kleift að stýra hurðum, aðgangsheimildum og opnunum í rauntíma — bæði á staðnum og í gegnum snjallforrit.

Fyrir orlofshús og gistiþjónustu bjóðum við jafnframt snjalllása og lyklabox sem auðvelda aðgangsstýringu gesta. Með fjarstýringu, tímabundnum kóðum og yfirsýn í appi er hægt að hafa fulla stjórn á aðgangi án staðarviðveru.

Skoða nánar

Dyrasímakerfi

Snjöll, örugg og nútímaleg aðgangsstýring fyrir fyrirtæki og fjölbýli

Smarton býður upp á heildstæð dyrasímakerfi frá Ubiquiti / UniFi Access sem sameina myndavél, samskipti og aðgangsstýringu í einni snjallri lausn. Kerfin henta jafnt fyrirtækjum, húsfélögum og rekstraraðilum sem vilja auka öryggi, bæta móttöku og einfalda aðgangsstýringu.

Skoða nánar

Netkerfi & WiFi

Smarton býður upp á öflugar og áreiðanlegar netkerfislausnir frá Ubiquiti / UniFi og Cudy Technology Co. — hannaðar til að tryggja hámarks hraða, stöðugleika og öryggi í rekstri.

Hvort sem um ræðir skrifstofu, verslun, lager eða fjölbýli, setjum við upp skalanlegt Wi-Fi og kapalkerfi sem styður allt frá daglegri nettengingu yfir í myndavélar, aðgangsstýringu og snjalllausnir.

- Wi-Fi dreifing án dauðra svæða
- Gestanet & aðgangsstýring
- VPN & fjaraðgangur
- PoE switchar & innviðir
- Miðlæg stjórnun og yfirsýn

Smarton sér um ráðgjöf, uppsetningu og rekstur — allt á einum stað.

Skoða nánar