Myndavélakerfi

Snjöll og örugg myndavélakerfi fyrir heimili og fyrirtæki. Við hönnum, setjum upp og þjónustum heildarlausnir sem veita þér fulla yfirsýn – hvar og hvenær sem er.

  • Ráðgjöf og þarfagreining
  • Fagleg uppsetning og frágangur
  • Fjarstýring, tilkynningar og atvikaleit
  • Viðhald og þjónustusamningar
Myndavélakerfi – lifestyle

Yfirlit — hvað er hægt að gera

Myndavélakerfi í dag snúast ekki bara um upptöku – heldur heildstæða öryggis- og rekstraryfirsýn. Með réttri uppsetningu færðu skýra stjórn á svæðum, atvikum og aðgengi – í rauntíma og með einfaldri leit.

Rauntíma vöktun

Skoðaðu mynd í beinni í síma eða tölvu með stöðugri og öruggri tengingu.

Upptökur

Vistað efni með skýrri tímalínu og einfaldri endurspilun.

Tilkynningar

Fáðu tilkynningar strax þegar hreyfing eða skilgreind atvik greinast.

Snjöll leit

Finndu atvik hratt í stað þess að fletta endalaust í upptökum.


UniFi myndavélar

UniFi myndavélar eru hannaðar fyrir þá sem vilja bæði faglegt útlit og alvöru afköst. Þær henta jafnt í heimahús og fyrirtæki – með stílhreinni hönnun, skýrri mynd og öflugri nætursjón.

  • Hágæða mynd og áreiðanleg nætursjón
  • AI atvikagreining (eftir gerðum)
  • PoE – einföld og snyrtileg tenging
  • Lausnir fyrir innan- og utanhússvöktun

UniFi Protect - Stjórnborð

Þú færð fulla yfirsýn: lifandi myndir, einföld tímalína, atvikaleit og stillingar á einum stað. Þetta er sérstaklega sterkt fyrir fyrirtæki sem vilja hafa skýra stjórn á mörgum svæðum og myndavélum.

  • Yfirlit með mörgum vélum í einu
  • Tímalína og atvikamerkingar
  • Notendastýring og aðgangar

UniFi Protect mobile app

UniFi Protect — í símanum

Í símanum er markmiðið einfalt: að þú getir opnað appið, séð hvað er í gangi og brugðist við strax. Þægilegt viðmót, skjótar tilkynningar og einföld deiling á upptökum þegar þarf.

  • Live view og tilkynningar
  • Hraðvirk endurspilun og deiling
  • Auðvelt í notkun fyrir alla

Uppsetning & þjónusta frá Smarton

Við sjáum um ferlið frá A-Ö: ráðgjöf, staðarúttekt, uppsetningu, frágang og stillingar. Fagleg uppsetning tryggir hámarks nýtingu og áreiðanleika kerfisins til framtíðar.

UniFi, UniFi Protect og tengt myndefni eru vörumerki og eign Ubiquiti. Efnið er birt til kynningar á lausnum sem Smarton hannar, setur upp og þjónustar.