Öryggiskerfi fyrir heimili, sumarbústaði og fyrirtæki
Ajax er nútímalegt öryggiskerfi þar sem innbrotavarnir, reykskynjun, vatnsskynjun, myndavélaeftirlit og snjallstýringar geta unnið saman í einu kerfi. Smarton aðstoðar við ráðgjöf, hönnun, uppsetningu og tilboð í kerfi sem hentar þinni eign.
Frá ráðgjöf yfir í fullbúið öryggiskerfi
Við skoðum rýmið, metum áhættu og setjum saman kerfi sem hentar eigninni. Markmiðið er ekki að selja stærsta pakkann, heldur réttu lausnina: rétta skynjara, rétta staðsetningu, rétta vöktun og snyrtilega uppsetningu.
Þarfagreining
Við förum yfir eignina, innganga, glugga, viðkvæm svæði, brunavarnir og hvort myndavélar eða vöktun eigi við.
Kerfishönnun
Við veljum Baseline, Superior eða Fibra eftir aðstæðum og setjum saman skýra tillögu að kerfi.
Tilboð
Þú færð tillögu að búnaði, uppsetningu og næstu skrefum áður en ákvörðun er tekin.
Uppsetning
Við sjáum um faglega uppsetningu, stillingar, prófanir og afhendingu á kerfinu.
Rétta línan fyrir rétta verkefnið
Ajax er ekki ein lausn fyrir alla. Heimili, sumarbústaðir og fyrirtæki hafa ólíkar þarfir. Við setjum kerfið saman eftir rými, áhættu, nettengingu, kröfum og daglegri notkun.
Ajax Baseline
Sterk grunnlausn fyrir heimili, íbúðir, sumarbústaði og minni atvinnurými. Þráðlaus, snyrtileg og sveigjanleg uppsetning með skynjurum, sírenum, takkaborðum og stjórnstöðvum.
- Hentar vel fyrir heimili og minni eignir.
- Góður kostur þegar óskað er eftir snyrtilegri þráðlausri uppsetningu.
- Hægt að byrja með grunnkerfi og bæta við síðar.
Ajax Superior
Professional línan fyrir verkefni þar sem gerðar eru meiri kröfur til stillinga, uppsetningar, yfirsýnar og áreiðanleika. Hentar fyrir sérhæfðari heimili, fyrirtæki og verkefni þar sem fagleg hönnun skiptir miklu máli.
- Fyrir professional uppsetningar og meiri kröfur.
- Hentar þegar kerfið þarf að vera sérsniðið og skalanlegt.
- Góð leið fyrir stærri og flóknari öryggisverkefni.
Ajax Fibra
Vírað Ajax kerfi fyrir fyrirtæki, stærri byggingar og verkefni þar sem stöðugleiki, lagnir, rekstraröryggi og framtíðarstækkun skipta mestu. Sérlega sterkur grunnur þegar verið er að hanna kerfi frá grunni eða uppfæra atvinnuhúsnæði.
- Hentar fyrirtækjum, lagerum, skrifstofum og stærri rýmum.
- Góður kostur þegar víruð uppsetning er æskileg.
- Sterkur grunnur fyrir langlíft og faglegt öryggiskerfi.
Öryggi fyrir bústaðinn þegar enginn er á staðnum
Sumarbústaður þarf oft að verjast fleiri en einni áhættu: innbroti, reyki, vatnstjóni, kulda og því að enginn sé nálægt þegar eitthvað gerist. Ajax hentar mjög vel í slík verkefni þar sem hægt er að sameina skynjara, sírenur, myndavélar og tilkynningar í eitt kerfi.
Við getum sett saman bústaðarpakka með innbrotavörn, reykskynjurum og myndavélaeftirliti, ásamt ráðgjöf um bestu staðsetningar og hvernig kerfið á að láta vita ef eitthvað gerist.
Ajax bústaðarpakki
Hér er dæmi um grunn sem má aðlaga eftir stærð, staðsetningu og notkun bústaðarins. Við stillum pakkann eftir því hvort áherslan sé á innbrot, brunavarnir, myndavélar, hitastig, vatnsleka eða fjareftirlit.
Heimili, sumarbústaðir og fyrirtæki
Heimakerfi
Fyrir íbúðir og einbýli þar sem markmiðið er að fá snyrtilegt öryggiskerfi án flókins framkvæmdarferlis. Innbrotavörn, reykskynjun, vatnsskynjun, sírenur og appstýring í einni lausn.
- Inngangar, gluggar og hreyfing.
- Reykskynjun og vatnsskynjun.
- App, notendur og tilkynningar.
Sumarbústaðakerfi
Fyrir eignir sem standa oft tómar og þurfa að láta vita strax ef eitthvað gerist. Sérsniðin lausn með innbrotavörn, brunavörnum, myndavélum og skynjurum eftir aðstæðum.
- Vörn þegar enginn er á staðnum.
- Myndavélar og yfirsýn yfir aðkomu.
- Viðvaranir í síma þegar kerfið bregst við.
Fyrirtæki með Fibra
Fyrir skrifstofur, verslanir, lagera og stærri rými þar sem vírað professional kerfi getur verið rétta lausnin. Fibra hentar vel þegar áreiðanleiki, framtíðarstækkun og fagleg hönnun eru í forgangi.
- Víruð uppsetning fyrir atvinnurými.
- Skalanlegt kerfi fyrir fleiri svæði.
- Hentar með myndavélum og aðgangsstýringu.
Fibra fyrir stærri og kröfuharðari uppsetningar
Þegar kemur að fyrirtækjum skiptir miklu að kerfið sé hugsað sem heild. Það þarf að huga að inngöngum, starfsmannaaðgengi, opnunartíma, viðkvæmum svæðum, myndavélum, brunavörnum og því hvernig viðbrögð eiga að virka.
Við hönnum Ajax kerfi þannig að það passi að rekstrinum. Í sumum tilfellum dugar þráðlaus lausn vel, en í stærri verkefnum getur Fibra verið sterkari grunnur fyrir langtímaöryggi.
- Verslanir, skrifstofur, lagerar og verkstæði.
- Víraðir skynjarar, sírenur, takkaborð og svæðaskipting.
- Samspil við myndavélar og öryggisferla fyrirtækisins.
Algengar spurningar um Ajax
Hvaða Ajax kerfi hentar mér?
Get ég fengið Ajax kerfi sett upp af Smarton?
Er hægt að sameina innbrot, reyk og myndavélar?
Hentar Ajax fyrir sumarbústaði?
Gerið þið tilboð áður en kerfi er ákveðið?
Uppsetning & þjónusta frá Smarton
Við förum yfir þarfir, mælum með réttri lausn og sjáum um uppsetningu og frágang. Fáðu ráðgjöf og tilboð.
