Lausnir fyrir stéttarfélög

Einfaldari aðgangur að orlofshúsum, svæðum og sameiginlegum eignum

Smarton hjálpar stéttarfélögum og orlofshúsafélögum að einfalda aðgang, lyklaskil og umsýslu með nútímalegum lausnum fyrir lyklabox, snjalllása, UniFi aðgangsstýringu og bómuhlið. Aðgangur getur verið veittur með tímabundnum kóða, síma, korti eða fjarstýringu — og stjórnað miðlægt án þess að starfsfólk þurfi að mæta á staðinn.

Tímabundnir aðgangskóðar Fjarstýring Miðlæg umsýsla Aðgangur fyrir gesti & þjónustu Kóðaopnun Fjarstýringar fyrir bílastæði
Lyklabox

Lyklaskil sem þurfa ekki að treysta á mannaða afhendingu

Fyrir orlofshús og gistieiningar þar sem hefðbundinn lykill er enn nauðsynlegur er snjallt lyklabox einföld og hagkvæm leið til að sjálfvirknivæða afhendingu. Umsjónaraðili býr til kóða með gildistíma og getur breytt eða afturkallað aðgang án þess að fara á staðinn.

Snjallt lyklabox fyrir orlofshús stéttarfélaga

Réttur aðgangur, á réttum tíma

Hægt er að útbúa sérstakan aðgang fyrir hvern gest, þrif, viðhald eða aðra þjónustuaðila. Lausnin minnkar lyklaumsýslu, fækkar óþarfa ferðum og gefur rekstraraðila betri stjórn á því hver hefur aðgang og hvenær.

  • Kóðar með skilgreindum gildistíma
  • Sérstakur aðgangur fyrir þrif og viðhald
  • Fjarstýring úr appi eða vefviðmóti
  • Hægt að afturkalla aðgang strax
  • Engin handvirk lyklaafhending
  • Hentar einu húsi eða stærra eignasafni
Aðgangsstýring

Ein lausn fyrir hurðir, snjalllása og aðgang inn á svæðið

Þar sem þörf er á meiri stjórn getum við byggt upp aðgangskerfi sem nær frá inngangshurðinni að bílastæðinu. Lausnin er valin eftir húsnæði, fjölda gesta, rekstrarfyrirkomulagi og því hversu miðlæg umsýslan þarf að vera.

UniFi Access

Miðlæg aðgangsstýring fyrir hurðir og sameiginleg rými

Fyrir stærri orlofssvæði, þjónustuhús eða sameiginleg rými býður UniFi Access upp á faglega stjórnun á aðgangi, notendum og heimildum.

  • Aðgangur með síma, korti eða kóða
  • Mismunandi heimildir eftir notendum
  • Miðlæg stjórnun á mörgum hurðum
  • Hentar vel þegar rekstur stækkar
Snjalllásar

Lykillaus aðkoma að einstökum húsum og íbúðum

Snjalllásar henta þar sem æskilegt er að sleppa alveg við lykla. Gestur fær tímabundinn kóða eða stafrænan aðgang sem rennur út að dvöl lokinni.

  • Tímabundnir PIN-kóðar
  • Stjórnun úr appi
  • Engin lyklaafhending eða lykilskil
  • Hentar vel fyrir sjálfsinnritun
Bómuhlið & svæði

Stýrður aðgangur að bílastæðum og lokuðum orlofssvæðum

Við setjum upp bómuhlið og aðgangsstýringu fyrir svæði þar sem aðeins gestir, starfsfólk eða heimilaðir aðilar eiga að komast inn.

  • Opnun með kóða
  • Fjarstýringar fyrir fasta notendur
  • App eða stjórnhnappur eftir þörfum
  • Hægt að tengja við miðlæga aðgangsstýringu
Stjórnun

Betri yfirsýn yfir gesti, aðgang og daglegan rekstur

Þegar mörg hús, gestir og þjónustuaðilar eru í umsjón skiptir máli að aðgangsstýring sé einföld. Með appi og vefviðmóti er hægt að undirbúa aðgang fyrirfram, gera breytingar þegar bókanir færast og bregðast strax við ef aðgang þarf að afturkalla.

App fyrir stjórnun aðgangs
App fyrir daglegar breytingar Stofnaðu, breyttu og afturkallaðu aðgang þegar þú ert á ferðinni.
Vefviðmót fyrir miðlæga aðgangsstýringu
Vefstjórnborð fyrir stærri rekstur Hentugt þegar halda þarf utan um fleiri eignir, notendur og reglur á einum stað.

Gestir

Útbúðu aðgang sem gildir aðeins á meðan dvöl stendur.

Þrif & viðhald

Gefðu þjónustuaðilum sérstakar heimildir án þess að deila aðalaðgangi.

Breytingar

Uppfærðu gildistíma eða afturkallaðu aðgang án þess að fara á staðinn.

Mörg hús & svæði

Byggðu upp lausn sem getur vaxið með eignasafninu og rekstrinum.

Ferlið

Frá þarfagreiningu að lausn sem starfsfólk og gestir geta treyst á

Við byrjum á rekstrinum, ekki bara búnaðinum. Fjöldi orlofshúsa, staðsetningar, nettenging, núverandi læsingar og hvernig gestir fá aðgang í dag ráða því hvaða lausn hentar best.

1

Þarfagreining

Við förum yfir eignir, gestaflæði, núverandi aðgang og hvað má einfalda.

2

Hönnun & tilboð

Við veljum rétta blöndu af lyklaboxum, snjalllásum, Access og svæðaaðgangi.

3

Uppsetning

Búnaður er settur upp, prófaður og stilltur miðað við raunverulegt rekstrarferli.

4

Afhending & stuðningur

Við förum yfir stjórnun, heimildir og verklag svo starfsfólk geti tekið við kerfinu.

 
Hafa samband

Við hjálpum þér að finna réttu lausnina

Fáðu ráðgjöf frá sérfræðingum okkar og finndu lausn sem hentar þínum aðstæðum. Sendu okkur fyrirspurn eða hringdu í okkur og við komum með skýra ráðgjöf, hentugan búnað og tilboð sem er sniðið að þínum þörfum.

Snjallari lausnir fyrir fyrirtæki & heimili.